Sagan okkar
Bókaútgáfan Salka var stofnuð vorið 2000 og heldur upp á 10 ára afmæli sitt á þessu ári. Nú vinna sex starfsmenn við fyrirtækið, sem alla tíð hefur vaxið jafnt og þétt og ætíð lagt megináherslu á útgáfu verka eftir konur þó nokkrir karlar séu líka innanborðs. Meira en helmingur titla eru handbækur af ýmsu tagi en þó koma út fáein skáldverk árlega, bæði íslensk og þýdd, og nokkrar ævisögur og barnabækur hafa litið dagsins ljós. Heilsubækur, lífsstílsbækur, matreiðslubækur og ferðabækur skipa stóran sess og bókum fyrir erlenda ferðamenn hefur fjölgað undanfarin misseri. Árið 2009 voru gefnir út nær 40 titlar hjá Sölku og þar af um 30 íslenskar bækur sem voru alfarið unnar á vegum forlagsins. Þetta er óvenju hátt hlutfall miðað við aðrar bókaútgáfur, enda ríkir mikil bjartsýni og vinnugleði í Sölku sem starfar í anda „Leyndarmálsins“ þar sem stendur: Hið hugsanlega er mögulegt.
Salka er forlag með sál.
