Gagnlegar leiðbeiningar
Skil og frágangur á frumsömdum handritum og þýðingum
Í hverjum mánuði fær SALKA fjöldann allan af frumsömdum handritum/þýðingum frá hugmyndaríku og skapandi fólki. Við biðjum þá sem skila inn efni að hafa eftirfarandi í huga:
- Panta skal tíma hjá ritstjóra (kristin@salkaforlag.is) eða útgefanda (hildur@salkaforlag.is) áður en komið er með handrit til að athuga hvort það sé áhugi fyrir hendi.
- Hægt að skila handriti í tölvupósti (sjá netföng hér að ofan) eða sendipósti. Handritið þarf að vera vel frágengið, prófarkalesið og snyrtilegt.
- Upplýsingar um höfund/þýðanda verða að fylgja með; starf, reynsla o. s. frv.
- Vegna þess hve við fáum mörg handrit til yfirlestrar gefum við okkur upp í allt að tvo mánuði til að halda handritunum.
- Á meðan handritið er í yfirlestri hjá SÖLKU er þess farið á leit að það sé ekki í skoðun hjá öðrum útgáfum.
- SALKA áskilur sér rétt til þess að skila handriti til baka án þess að veita rökstuðning eða skrifa umsögn.
