forlag með sál

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?


Dagatalsbókin Konur eiga orðið hefur fengið frábærar viðtökur!

Nú erum nú að leita að konum sem vilja vera með í fjórðu dagatalsbókinni; Konur eiga orðið 2011.
Okkur væri heiður að því að fá eina til tvær setningar frá þér um lífið og tilveruna sem kæmu til greina í þetta verkefni.

Ef þú átt orðheppna vinkonu þá endilega áframsendu þessa slóð á hana því það er nauðsynlegt að hafa sem fjölbreyttastan hóp í svona bók þar sem eiga að mætast konur á öllum aldri, með mismunandi reynslu, starf og lífsstíl.

Ykkur er algerlega í sjálfsvald sett hvað þið skrifið um; svo lengi sem það er frá eigin brjósti. Þið getið skrifað um hvað sem er ... hvort sem það er um pípulagnir, skýjafar, stjórnmál eða tilfinningar: Þið eigið orðið.

Við erum ekki að leita að löngum eða lærðum hugleiðingum heldur einlægni, hreinskilni og hispursleysi.

FRAMKVÆMD VERKEFNIS
1. Við förum yfir allar innsendar hugleiðingar og veljum þær sem okkur finnst henta best í bókina.
2. Eftir að hafa valið 64 hugleiðingar (í byrjun hverrar viku og mánaðar) látum við viðkomandi vita og sendum hugleiðinguna með þeirri mynd sem hönnuðurinn – Myrra Leifsdóttir – velur henni.
3. Þær konur sem komast ekki að með hugleiðingu árið 2010 verða líka látnar vita.
4. Sem þakklætisvott fær hver og ein sem verður birt efni eftir eina dagatalsbók að gjöf.

Kæru konur!
Höldum saman og látum gott af okkur leiða!
Bestu kveðjur,

Kría

Hugleiðingar sendist til:  kristin@salkaforlag.is

 

 

 

Kaupa dagatalsbókina 2010




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica