Stefanía Guðbjörg Gísladóttir
Stefanía Guðbjörg Gísladóttir
Stefanía Guðbjörg Gísladóttir er fædd í Seldal, Norðfirði árið 1959 og alin upp í níu systkina hópi. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið fjölbreytileg störf, þ.á,m. við búskap.
Stefanía er gift áströlskum manni og eiga þau 4 börn. Eftir 10 ára búskap í Seldal, fluttu þau til Vestur-Ástralíu og eru nú búsett í þorpinu Kendenup. Hún hefur sent frá sér nokkrar bækur.
Stefanía er náttúrubarn og hefur næma tilfinningu fyrir leik að orðum og andstæðum.
