Unnur Sólrún Bragadóttir
Unnur Sólrún Bragadóttir
Unnur er fædd árið 1951. Hún er með háskólapróf í bókmenntafræði, hagsögu og uppeldis- og kennslufræði. Unnur er kennari en stundar nú nám í Svíþjóð.
Lopaljóð er fyrsta ljóðabókin sem Salka gefur út eftir Unni, en Unnur hefur gefið út tíu ljóðabækur
Nú ætla ég að prjóna peysu handa þér
úr perlum orðaforðans, hún verður gjöf frá mér.
Er þú henni klæðist, kærleik þig umvefur,
kveðjurnar frá mér allar í sér hefur.
Hún gætir þess einnig þér aldrei verði kalt
þú yl hennar skynjar í frosti þúsundfalt,
í sérhverja lykkju af samvisku vef
sætustu ljóðin mín og öll þér gef.
