Erla Sigurðardóttir
Erla Sigurðardóttir
Erla útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988 og lauk svo prófi úr málaradeild listaskóla í Trier, Þýskalandi árið 1991. Hún hefur starfað við myndlist síðan hún luak námi. Erla hefur myndskreytt barnabækur frá árinu 1991 og ásamt því kennt við myndlistarskóla Kópavogs. Erla hefur hlotið margar innlendar sem erlendar viðurkenningar fyrir bókaskreytingar og árið 2001 var hún ein af fjórum bæjarlistamönnum Kópavogs.
Erla samdi sjálf og myndskreytti hina gullfallegu barnabók; Gusugangur í grasinu sem Salka gefur út.
