Guðlaugur Arason
Guðlaugur Arason
Guðlaugur er fæddur á Dalvík árið 1950 og er Íslendingur. Hann hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn frá árinu 1974. Guðlaugur gekk í Kaupmannahafnarháskóla til að læra bókmenntafræði og hefur ekki snúið heim til Íslands aftur, en hefur tekið að sér að kynna Ísland Dönum og Íslendingum Danmörku af miklum móð. Hann hefur kennt íslensku, rekið menningarhús á Vestur-Sjálandi og hefur hann um árabil verið leiðsögumaður Íslendinga í Kaupmannahöfn.
Guðlaugur hefur einnig fengist við þýðingar, fræðastörf og einnig hefur hann skrifað skáldsögur, tvær af þeim hafa hlotið bókmenntaverðlaun.
Salka hefur gefið út tvær bækur eftir Guðlaug, en báðar fjalla þær um Kaupmannahöfn; Gamla góða Kaupmannahöfn (2005) og Kaupmannahöfn – ekki bara Strikið (2006).
