Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir
Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir
Steinunn Þorvaldsdóttir starfar sem textahöfundur, líkamsræktarþjálfari og almannatengslaráðgjafi. Ragnhildur Gísladóttir er ein ástsælasta tónlistarkona þjóðarinnar og sennilega þekktust fyrir að hafa verið meðlimur Stuðmanna og Grýlanna.
Þær Steinunn og Ragga ákváðu að gefa út þjóðlega þorrabók með ýmsum nýstárlegum hugmyndum. Velkominn Þorri inniheldur margvíslegan fróðleik sem tengist þorrahátíðinni, uppskriftir að þorramat, þorraföndur og jafnvel þorralög. Ragga samdi tvö ný þorralög sem geta yljað landanum í skammdeginu. Ásamt þessu eru viðtöl við þekkta einstaklinga sem hafa átt þátt í að skapa og viðhalda þorrahefðinni. Þeim stöllum finnst að halda ætti upp á þorrann eins og jólin og páska!

