forlag með sál
  • Hallgrimur_Jonsson

Hallgrímur Jónsson frá Laxamýri

Hallgrímur Jónsson frá Laxamýri

Íslenskir

Saga Hallgríms Jónssonar frá Laxamýri, Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa, er saga hvunndagshetju og afreksmanns, eftirminnileg lýsing á samfélagi og lífsbaráttu nýliðinnar aldar.

Hallgrímur Jónsson fæddist á Bessastöðum en ólst upp á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og kennir sig við þann stað. Hann byrjaði ungur að stunda íþróttir við frumstæðar aðstæður og varð fljótt afreksmaður í kringlukasti og kúluvarpi. Hann keppti á ótal mótum á Íslandi og erlendis og setti mörg Íslandsmet þótt oft væri langt að fara og lítinn stuðning að fá. Jafnframt strangri íþróttaiðkun stundaði Hallgrímur alla tíð meira en fulla vinnu, enda hafði hann fyrir stórri fjölskyldu að sjá. Hann á einnig langan og viðburðarríkan feril að baki sem lögreglumaður og síðar sundlaugarstjóri á tímum þegar oft þurfti að bjarga málum með snarræði. Saga Hallgríms Jónssonar frá Laxamýri, Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa, er saga hvunndagshetju og afreksmanns, eftirminnileg lýsing á samfélagi og lífsbaráttu nýliðinnar aldar.




Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica