forlag með sál
  • Bubbi-5

Bubbi Morthens

Bubbi Morthens

Íslenskir

Bubba Morthens þarf vart að kynna, en hann er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Ástríða Bubba fyrir utan tónlistina (að sjálfsögðu) er veiði. Bubbi féll fyrir Laxá í Aðaldal og Salka gefur út bók hans sem ber hið einfalda heiti: Áin.

Í bókinni rekur Bubbi sögu laxveiða á Nessvæðinu allt frá fyrsta fluguveiðimanninum sem kenndi Þorgrími í Nesi að fara með stöng, til ungu mannanna sem nú ráða ríkjum. Lesandinn fær að kynnst ógleymanlegu fólki; Heimi á Tjörn, Steingrími í Nesi, Lissý á Halldórsstöðum, svo fáir séu nefndir, og lýsingar af glímunni við stórlaxa með sporða á við skóflublað eru spennu hlaðnar.

Ógleymanleg og einstök saga um drottningu laxveiðánna á Íslandi, prýdd stórkostlegum myndum eftir Einar Fal Ingólfsson, Guðmund frá Miðdal og fleiri laxveiðiáhugamenn.

Bubbi Morthens, born in 1956, has long been among Iceland's most popular musicians.

His first foray into the realm of literature was the children's book Rúmið hans Árna, illustrated by his brother Tolli. Since then, Morthens has released a number of books, most of them touching on the subject of pole fishing, including the book Áin/The River published by SALKA.



Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica