Ingibjörg Hjartardóttir
Ingibjörg Hjartardóttir
Ingibjörg Hjartardóttir er fædd á Tjörn í Svarfaðardal 18. maí 1952, dóttir hjónanna Hjartar Eldjárns Þórarinssonar og Sigríðar Hafstað. Hún ólst upp á Tjörn ásamt sex systkinum. Hún er bókasafnsfræðingur að mennt og vann lengst framan af á ýmsum bókasöfnum, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Frá 1995 hefur hún að mestu leyti fengist við ritstörf þó hún hafi inn á milli tekið hlutastörf m.a verið forstöðumaður Bókasafns Ólafsfjarðar í nokkur ár.
Eiginmaður hennar er Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur og synir hennar eru Þórarinn Hugleikur Dagsson, myndasöguhöfundur og leikskáld og Þormóður Dagsson, bókmenntafræðingur og blaðamaður.
Ingibjörg hefur skrifað leikrit bæði fyrir atvinnu- og áhugaleikhús, útvarpsleikrit, smásögur og ljóð. Hún hefur þýtt sex skáldsögur. Árið 2001 kom út hjá Máli og Menningu fyrsta skáldsaga hennar, Upp til Sigurhæða. Fjórum árum síðar, árið 2005, kom út hjá Sölku önnur skáldsagan hennar, Þriðja bónin. Bókin hlaut verðskuldaða athygli og árið 2007 kom hún út í þýskri þýðingu hjá Salon Literatur Verlag í Munchen, Die dritte Bitte.
Þriðja skáldsaga Ingibjargar, Hlustarinn, kom út snemma árs 2010 og fékk hún prýðilega dóma hérlendis sem og erlendis. Útgáfurétturinn var seldur til Þýskalands og er bókin væntanleg í þýskri þýðingu fljótlega.

