Thomas Möller
Thomas Möller
Thomas Möller er hagverkfræðingur og MBA. Hann starfar sem framkvæmdastjóri og eigendi Rýmis-Ofnasmiðjunnar ehf. auk þess að starfa sem ráðgjafi hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Consultis ehf. Thomas er einnig kennari í Vörustjórnun í Viðskiptafræðideild HR.
Thomas gaf út bókina Tímastjórnun árið 1995 og 2003 og hefur hún selst í um 10 þúsund eintökum og verið þýdd bæði á dönsku og sænsku. Hjá Sölku hefur Thomas gefið út bækurnar Eldaðu maður (2007) og Grillaðu maður (2009) sem eru, eins og titlarnir gefa til kynna, matreiðslubækur sérstaklega ætlaðar karlmönnum. Einnig hefur Thomas haldið marga fyrirlestra og námskeið meðal annars hjá Stjórnunarfélaginu, HÍ, HR og Háskólanum að Bifröst.
Thomas er kvæntur og á þrjú börn.

