forlag með sál
  • Gudrun_Bergmann

Guðrún G. Bergmann

Guðrún G. Bergmann

Íslenskir

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og félaga. Hún hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsumál og haldið ýmiss konar námskeið með áherslu á hugrænt atferli, heilsu og jákvæðni.

Guðrún G. Bergmann er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur undanfarin 14 ár búið á Hellnum í Snæfellsbæ. Þar hefur hún lagt sitt af mörkum til umhverfisvænnar ferðaþjónustu, sjálfbærrar þróunar og vottunar sveitarfélaga, auk þess sem hún rekur Hótel Hellnar á sumrin.

Guðrún er ekkja, á tvo uppkomna syni og tvö barnabörn. Er auk þess í góðu sambandi við eldri bræður sona sinna og á í gegnum þá bæði stjúpbarnabörn og stjúpbarnabarnabörn. Fjölskyldan og náin tengsl við hana eru Guðrúnu mikils virði. Umhverfismál eru henni afar hugleikin, auk hvers kyns útivistar og ferðalaga innanlands sem utan.

Konur geta breytt heiminum er tíunda bók hennar og sú fyrsta sem gefin er út hjá Sölku.




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica