Lovísa María Sigurgeirsdóttir
Lovísa María Sigurgeirsdóttir
Lóa Maja er fædd og uppalin í Hrísey og er afar mikill Hríseyingur. Hún er næstyngst af fjórum systkynum og fjögurra barna mamma. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og auk þess dýravinur.
Lóa Maja fór til Dalvíkur í skóla þegar hún var 14 ára, kynntist manninum sínum þegar hún var 15 og hefur búið á Dalvík nánast síðan. Hún lærði skrifstofutækni og að vera stuðningsfulltrúi, hefur lengst af unnið við skrifstofustörf, núna sem bókari hjá Promens Dalvík ehf. En hún var líka í sex ár í barnaskólanum á Dalvík sem stuðningsfulltrúi og handmenntakennari. Enda eru börn henni kær og m.a. var fjölskyldan einu sinni með fjölfatlaðan dreng í stuðningi aðra hvora helgi í rúm þrjú ár.
Lóa Maja hefur verið þó nokkuð virk í Leikfélagi Dalvíkur og hef leikið, skrifað einþáttunga og söngtexta og örlítið leikstýrt fyrir félagið. Auk þess er mikið leitað til hennar til þess að gera söngtexta fyrir fermingar, brúðkaup, afmæli og allskonar uppákomur. Hún hefur alltaf haft gaman af því að semja og heima hjá foreldrum hennar er m.a. til bók frá því að hún var 8 ára, með vísum, þulum, leikritum og sögum eftir hana.
Með því skemmtilegasta sem Lóa Maja gerir er að fara á sjó með pabba sínum og veiða í matinn. Ekki skemmir ef mamma hennar kemur með líka.
