forlag með sál
  • Hallveig_Thorl

Hallveig Thorlacius

Hallveig Thorlacius

Íslenskir

Hallveig Thorlacius á ættir að rekja til sögukvenna og hefur notað sögurnar sem amma hennar sagði barnabörnum sínum í eldhúsinu sem efnivið í sérstakan frásagnarstíl. Hún notar leikbrúður og virkjar jafnframt áhorfendur sína til þátttöku - lætur börnin helst fara heim með þá tilfinningu að þeim hafi tekist að bjarga lífi söguhetjunnar.

Hún hefur undanfarna áratugi ferðast um borgina, landið og heiminn með brúðuleikhúsið sitt, Sögusvuntuna, en í þeim leikhúsvösum leynast jafnan sögur eftir hana. Þessi leikstíll nýtur vaxandi vinsælda og Hallveig hefur komið víða við. Hún hefur sýnt í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Grænlandi, Færeyjum, Englandi, Rússlandi, Slóveníu og Kína, og árið 2000 ferðaðist hún um þver og endilöng Bandaríkin og Kanada til að halda upp á 1000 ára afmæli Snorra Þorfinnsonar. Í Slóveníu kom út barnabók árið 1998 sem var byggð á jólasýningu Sögusvuntunnar undir nafninu Köttur Kattarson og fjallar um íslenska jólaköttinn, jólasveinana og Grýlu.

Nú hefur Hallveig valið sér annan frásagnarmiðil og skrifað sína fyrstu skáldsögu, Martröð, spennusögu fyrir unglinga, sem gerist í Reykjavík og Mexíkó. Í hjáverkum er Hallveig leiðsögumaður fyrir rússneska ferðamenn og jógakennari.

 




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica