Eyrún Ýr Tryggvadóttir
Eyrún Ýr Tryggvadóttir
Eyrún Ýr Tryggvadóttir er fædd árið 1978, tveggja barna móðir og starfar sem forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík. Hún hefur sent frá sér þrjár skáldsögur. Sú fyrsta, Annað tækifæri (2004) fór aldrei í almenna dreifingu en árið 2008 kom út bókin Hvar er systir mín hjá Sölku og ári síðar sjálfstætt framhald þeirrar sögu, Fimmta barnið. Þriðja bókin, Ómynd, kom út árið 2011.
Hvar er systir mín og Fimmta barnið voru báðar tilnefndar til Blóðdropans, verðlauna Hins íslenska glæpafélags.
Hvar er systir mín?
fjallar um Andreu, unga stúlku sem flækist í dularfulla atburðarás sem ekki verður séð fyrir endann á. Bókin er grípandi glæpasaga, full af mannvonsku, afbrýðisemi, ástum og spennu. Og greinilegt að forstöðumaður bókasafnsins veit hvað það er sem fólk helst vill lesa. Það verður spennandi að fylgjast með því sem koma skal hjá þessari nýju íslensku glæpa-prinsessu að norðan.
Andrea er hér enn á ferð og hefur gert róttækar breytingar á lífi sínu. Hún starfar nú sem blaðamaður og undarlegt mál rekur á fjörur hennar. Barnslík finnst í ruslakistu og áður en Andrea veit af er hún komin á bólakaf í rannsókn málsins. Sagan teygir anga sína áratugi aftur í tímann og tengist fólki af öllum stigum þjóðfélagsins.
Ómynd
Kaldan föstudag í desemberbyrjun hverfur barn á fyrsta ári úr vagni sínum á Akureyri. Íbúar eru harmi slegnir og lögreglan ráðþrota. Blaðamaðurinn Andrea fær fregnir af málinu og heldur norður í land. Eftirgrennslan hennar leiðir í ljós að ekki er allt sem sýnist hjá fjölskyldu barnsins og hún neitar að láta staðar numið fyrr en hún hefur grafið upp hvað leynist undir yfirborðinu.
Viðtal við Eyrúnu á sjónvarpsstöðinni N4 í tengslum við útgáfu Ómyndar og Carpe diem.

