forlag með sál

Bryndís Víglundsdóttir

Bryndís Víglundsdóttir

Íslenskir

Bryndís Víglundsdóttir skrifar sniðugar sögur um jólasveina. Hún fæddist í Reykjavík árið 1934. Hún hefur sérfræðimenntun og mikla starfsreynslu af kennslu og vinnu með fötluð börn, sem sérkennari og skólastjóri. Lengst af var hún skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Íslands.

Auk þess hefur hún starfað mikið að menntamálum fjölfatlaðra á Norðurlöndum og á alþjóðlegum vettvangi. Árið 1989 hlaut Bryndís Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu.

Samhliða þessu hefur Bryndís unnið við ritstörf, dagskrágerð og þýðingar. M.a. þýddi hún uppeldishandbókina Töfrar 1-2-3 og sögu Theu Halo: Þeir tóku allt – meira að segja nafnið mitt og skrifaði stórskemmtilegar sögur af sveinum sem við könnumst öll við: Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Jólabaðið (2004) og Grýla á fæðingardeildinni (2008).

Bryndís hefur sent ýmsar hugleiðingar til dagblaða, t.d. eftirfarandi:

Mjólkuðu kýrnar sig kannski sjálfar?

Nú keppast útgefendur við að auglýsa nýútgefnar bækur og maður freistast til að trúa við lestur auglýsinganna að varla hafi jafn frábærar bækur áður verið gefnar út. Er þar bæði vitnað til efnis og þá ekki síður til þess hvað þær eru vel læsilegar. Verulegur hluti þessara mjög læsilegu bóka var skrifaður á erlendum málum en bækurnar í auglýsingunum eru boðnar á íslensku. Yfirleitt er ekki minnst á hvernig þessi breyting varð á textanum. En víst er að hún gerðist ekki af sjálfu sér frekar en að kýrnar mjólki sig sjálfar. Þeir sem hafa þýtt ritverk vita að þýðingar ritverka krefjast margslunginnar kunnáttu ef vel á að vera. Þýðandi verður að kunna málið sem þýtt er af og málið sem þýða skal á afar vel og vera næmur á hin margslungu blæbrigði beggja málanna. Hann verður að kynna sér aðstæður allar og oft á tíðum flókna menningu að baki ritverkins sem þýða á. Síðast en ekki síst verður þýðandi að kunna öguð vinnubrögð og búa yfir vinnuþreki vel í meðallagi.

Bækur þýða sig ekki sjálfar.

Að ofansögðu leyfi ég mér að benda útgefendum á að geta þýðenda í auglýsingum sínum.

Bryndís Víglundsdóttir






Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica