Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir er fædd í Reykjavík arið 1967. Hún ólst upp í Þorlákshöfn og Reykjavík en stundaði einnig nám í heimavistarskólum. Birgitta gaf út sína fyrstu ljóðabók, Frostdingla, sem hún jafnframt myndskreytti, árið 1989. Sjálfsævisöguleg Dagbók kameljónsins kom út hjá Sölku árið 2005.
Birgitta er sannkölluð fjöllistakona og hefur starfað sem ljóðskáld, rithöfundur, ritstjóri, netskáld og myndlistarkona. Auk þessa hefur hún skipulagt listahátíðir og -viðburði, m.a. Margmiðlunarhátíðina Drápu, þekkt erlendis sem „Craters on the Moon“, og „List gegn stríði“ þar sem fjöldi íslenskra listamanna og skálda komu fram til að mótmæla stríðinu í Írak.
Birgitta setti upp fyrsta listagalleríið á netinu 1996 í samstarfi við Apple-umboðið undir yfirskriftinni „Listasmiðja Apple umboðsins“. Verk Birgittu hafa verið sýnileg í internetinu síðan 1995 en þá opnaði hún vefsíðu sína „Womb of Creation“. Vefurinn var valinn besta heimasíða einstaklings árið 1996 af Tölvuheimi, BT tölvum og Margmiðlun.
Birgitta er einn stofnenda útgáfunnar „Beyond Borders“ og hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra verkefna sem tengjast ritstörfum, m.a. tveimur alþjóðlegum bókum sem heita, The World Healing Book og The Book of Hope. Þar má meðal annarra finna ritsmíðar eftir Lawrence Ferlinghetti, Rita Dove, Dalai Lama, Rabbi Micheal Lerner, John Kinsella og Sigur Rós.
Birgitta er formaður félagsins Vinir Tíbet og virkur bloggari.
Hún er líka með MySpace-síðu.

Lesið meira um Birgittu Jónsdóttur á Bókmenntavefnum.

