Auður A. Ólafsdóttir
Auður A. Ólafsdóttir
Auður A. Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún er lektor í listfræði við Háskóla Íslands. Áður hefur hún starfað sem listfræðingur og kennari í listasögu, m.a. við Leiklistarskóla Íslands og verið forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands. Hún hefur sett upp myndlistarsýningar og fjallað um myndlist og listasögulegt efni í ýmsa fjölmiðla.
Auður hefur skrifað þrjár skáldsögur. Fyrsta bók hennar var Upphækkuð jörð sem kom út hjá Máli og menningu árið 1998, Rigning í nóvember kom síðan út hjá Sölku árið 2004 og hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, auk þess að vera tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum. Afleggjarinn kom út árið 2007, hún hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum, auk Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna.Nýlega var bókin tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Auður hefur hlotið mikla athygli og einróma lof gagnrýnenda fyrir einstaklega seiðandi stíl og listræn efnistök. Hún heldur lesandanum við efnið með því að tefla fram trúverðugum persónum sem glíma við óvæntar og oft kómískar aðstæður og kemur sífellt skemmtilega á óvart. Búið er að selja útgáfuréttinn á Afleggjaranum til Danmerkur og margir erlendir útgefendur hafa sýnt verkinu áhuga, bæði á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu.
Bókstafurinn A. í millinafni höfundar stendur fyrir Ava sem er kaþólskt skírnarnafn Auðar. Heilög Ava var blindur miðaldadýrlingur.

