Helene Magnusson
Helene Magnusson
Hélène Magnússon fæddist í Frakklandi árið 1969. Hún lauk meistaraprófi í lögum og starfaði um skeið sem lögmaður í París. Árið 1995 söðlaði hún um og flutti til Íslands þar sem hún hóf myndlistar- og hönnunarnám. Hún á þrjár dætur og starfar nú sem sjálfstæður hönnuður.
Hélène sækir sér gjarnan innblástur í gamla íslenska handmennt sem hún reynir að þróa á nýjan og spennandi hátt.
Tölvupóstfang: helene@helenemagnusson.com

