Guðrún Jóhannsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir er gift og á tvö uppkomin börn. Á háskólaárunum bjó hún í mörg ár erlendis og kynntist matarhefðum bæði frakka og Kaliforníubúa. Innblásin af hversdagseldamennsku þessara þjóða hóf Guðrún að skrifa matarpistilinn "Til hnífs og skeiðar" fyrir Fréttablaðið haustið 2003 með áherslu á spennandi og ferska en ódýra rétti.
Pistlarnir birtust vikulega í blaðinu í samtals þrjú og hálft ár. Guðrúnu datt í hug að koma úrvali af "Til hnífs og skeiðar" pistlum út á bók. Hjá Sölku stungum við uppá að Guðrún gengi skrefinu lengra og skrifaði röð matreiðslubóka!
Fyrstu tvær bækurnar í röðinni hafa nú þegar komið út. Bókin Hollt og ódýrt , sem er úrval uppskrifta sem áður birtust í pistlunum, og bókin Hollt og fljótlegt, sem er stútfull af girnilegum, fljótlegum réttum. Eitt af því sem er óvenjulegt við þessar bækur er að Guðrún tekur myndirnar af matnum sjálf. Fleiri litlar matreiðslubækur með hentugum, hollum og girnilegum uppskriftum og glæsilegum myndum eru í farvatninu.

