Pjetur Hafstein Lárusson
Pjetur Hafstein Lárusson
Pjetur Hafstein Lárusson fæddist í Vestmannaeyjum 31. ágúst 1952, en flutti á fyrsta ári upp á fastalandið. Þegar hann var tvítugur lá leið hans til Svíþjóðar, þar sem hann stundaði nám í blaðamennsku. Fyrsta ljóðabók Pjeturs, Leit að línum, kom út árið 1972, en alls eru frumortar ljóðabækur hans nú orðnar fjórtán að tölu.
Þá hefur hann gefið út þrjár bækur með ljóðaþýðingum og samtalsbók við Stefán frá Möðrudal, Fjallakúnstner segir frá, en hún kom út árið 1980. Árið 2002 kom svo út bókin Frá liðnum tímum og líðandi, en þar ræðir Pjetur við þá Jón frá Pálmholti, skáld og formann Leigjendasamtakanna, Davíð Davíðsson prófessor í læknisfræði, Jóhann Pétursson rithöfund og vitavörð og Vilhjálm Eyjólfsson hreppstjóra á Hnausum í Meðallandi. Árið 2004 kom út á vegum Hveragerðisbæjar bók Pjeturs, Hveragerðisskáldin 1933 til 1974. Sama ár kom út smásagnasafn hans, Nóttin og alveran, með myndum eftir Einar Hákonarson. Einnig má nefna þýðingar Pjeturs á keltneskum ævintýrum og georgísku helgisögnina Píslarvætti hinnar heilögu Sjúsanikar drottningar, sem kom út árið 1996, en henni snörðu þeir saman á íslensku, Grogol Matsjavariani. Fór þýðingin þannig fram, að Grigol grófþýddi, en Pjetur fínpússaði.
Árið 1992 annaðist Pjetur útgáfu bókarinnar Flaskað á lífinu, en þar gefur að líta úrval ljóða Jónasar Friðgeirs. Því má svo bæta við, að Pjetur var einn af stofnendum bókmenntatímaritsins Lystræninginn um miðjan áttunda áratug síðustu aldar og tæpum áratug síðar ljóðatímaritsins Ljóðorns. Hann var auk þess stofnfélagi Bókmenntafélagsins Hringskugga, se um aldamótin gaf út all nokkrar bækur, aðalega ljóðabækur.
Erlendar þýðingar á verkum Pjeturs er að finna í nokkrum tímaritum, svo sem die horen, 1986 (þýska), Horisont, 1994, (sænska), Ice-floe, 2003 (enska), japanska hækutímaritnu World Haiku (enska og japanska). Þá er væntanleg á spáni, bók með smásögum norrænna höfunda og verður eins saga Pjeturs úr bókinni Nóttin og alveran í spænskri þýðingu Kristins R. Ólafssonar.
Pjetur er bæði með heimasíðu og bloggsíðu, www.hafstein.blog.is.

