forlag með sál
  • Asthildur

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Íslenskir

Ásthildur lauk Meistaraprófi, með áherslu á talmeinafræði frá USA árið 1999, og hefur hefur mikla reynslu af ráðgjöf og vinnu með að styrkja boðskiptafærni ungra barna. Árið 1996 stofnaði hún ásamt öðrum talmeinafræðingum eigin talmeinastofu; Talþjálfun Reykjavíkur. Bókaútgáfan Salka gaf út bókina um Bínu bálreiðu árið 2006. Bókin byggir á langri reynslu höfundarins í vinnu sinn sem talmeinafræðingur.

Fyrsta útgáfuverk Ásthildar var kennsluefnið: Íslenski málhljóðakassinn. Þetta efni vann hún í samvinnu við Elínborgu Ísaksdóttur og Sigríði Pétursdóttur og var það gefið út af Námsgagnastofnun árið 1987. Þetta námsefni er notað til þess að vinna með íslensku málhljóðin og er þýtt og aðlagað úr dönsku. Árið 2000 skrifaði hún ásamt Sigurlaugu Jónsdóttur grein um mál og lestur í Lestrarbókina okkar sem er greinasafn um lestur og læsi. Bókin var gefin út af Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands og Íslenska lestrarfélaginu.

Bókin Ljáðu mér eyra var síðan gefin út árið 2001. Ásthildur vann þessa bók í samvinnu við Valdísi Guðjónsdóttur. Þessi bók leggur áherslu á að styrkja undirstöðuþætti fyrir lestur. Hún hefur notið mikilla vinsælla hjá ungu kynslóðinni sem er að undibúa sig fyrir lestur og ekki síst hjá foreldrum sem eru meðvitaðir um að undirbúa börnin sín sem best fyrir grunnskólann. Bókin var endurútgefin árið 2007.

Í framhaldi af Bínu bálreiðu gaf Salka bókina; Bína fer í leikskóla árið 2007. Bókin er tileinkuð leikskólakennurum. Í framhaldi af bókinni var gefið út Íslenskt myndalottó sem byggir á hugmyndum úr bókunum um Bínu. Handritið um þriðju bókina um Bínu er tilbúið, en þar leysir hún töfra bókstafanna og vinnur með undirstöðuþætti fyrir lestur. Bók sem allir þeir sem hafa áhuga á því að undirbúa börnin sín fyrir að læra að lesa ættu að eiga.

Ásthildur hefur skrifað fjölda fagreina um málörvun, boðskiptafærni, málþroskafrávik og undirbúning fyrir lestur í fagtímarit eins og Talfræðinginn sem er fagtímrit félags talkennara og talmeinafræðinga, Glæður sem er fagtímarit, sérkennara, og Skólavörðuna sem er málgagn Kennarasambands Íslands. Hún er einnig með fyrirlestra og námskeið fyrir foreldra og annað fagfólk sem vinnur með málörvun. Ásthildur er með heimasíðu, www.talstudio.is




Hugmyndafræðin bakvið bækurnar um Bínu

Bækurnar Bína bálreiða og Bína fer í leikskóla byggja á langri reynslu höfundar af því að að styrkja boðskiptafærni og efla málþroska hjá ungum börnum. Bína er reið af því að hún veit ekki hvernig hún á að haga sér. Stundum kastar hún sér í gólfið og öskrar. Í bókunum lærir hún ýmislegt gagnlegt sem tengist snemmtækri íhlutun og lærir undirstöðuþætti boðskipta. Bækurnar eru myndskreyttar af Bjarna Þóri Bjarnasyni myndlistarmanni. Honum tekst að glæða persónurnar í bókunum einstöku lífi þannig að auðvelt er að láta sér þykja vænt um þær.

Það sem Bína lærir í bókinni Bína bálreiða er að sitja kyrr, hlusta, passa hendur, bíða, setja sig í spor annarra, gera til skiptis, endurtaka og muna. Einnig lærir hún ný orð, hermir eftir hljóðum og lærir að þekkja stafinn sinn ásamt því að finna orð sem að byrja á sama staf og hún á. Í bókinni Bína fer í leikskóla kvíðir hún fyrir að byrja í leikskólanum. Hún er ekki viss um að mamma komi aftur að sækja hana og hún veit ekki alltaf hvernig hún á að hegða sér innan um hina krakkana. Í leikskólanum lærir hún margt skemmtilegt, til dæmis hvað leiktækin heita, hvernig hún eignast vini, lærir að biðja um hjálp ásamt því að læra mörg ný orð. Fjöldi dýra koma Bínu til hjálpar og bækurnar byggja á upprifjun og endurtekningu. Ung börn þurfa og hafa mjög gaman af því að endurtaka það sem að þeim finnst skemmtilegt. Þetta kemur t.d. fram þegar þau vilja lesa sömu bókina eða horfa á sama myndbandið aftur og aftur.







Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica