forlag með sál
  • Freyja og Alma

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Íslenskir

Freyja Haraldsdóttir er fædd 1986. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ jólin 2005 og stundar nú nám í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Alma Guðmundsdóttir er fædd 1984. Hún var stuðningsfulltrúi Freyju um tíma og hreifst þá af viðhorfum hennar og óbilandi kjarki.

Freyja skrifaði bókina Postulín, sem kom út í nóvember 2007, ásamt Ölmu Guðmundsdóttir. Freyja og Alma hafa lagt mikla vinnu í að kynna bókina og nota hana sem fræðslugagn með upplestrum og umræðum í unglingadeildum grunnskóla.

Alma hefur komið víða við, meðal annars gerði hún garðinn frægan sem söngkona með stúlknasveitinni Nylon. Alma stundaði Mátt kvenna í Háskólanum á Bifröst. Hún stofnaði www.namskeid.com ásamt Eddu Björk Pétursdóttur og hélt þar utanum námskeiðahald. Hún starfar nú sem blaðamaður á innblaði Fréttablaðsins, Föstudegi. Alma er trúlofuð Óskari Páli Sveinssyni og býr í Mosfellsbæ.

Auk Postulíns skrifaði Freyja einnig handbókina Að sýna virðingu í verki, en hún er ætluð stuðningsfulltrúum nemenda og var gefin út af Námsgagnastofnun. Fyrir utan að hafa starfað töluvert á leikskólum hefur aðalstarf Freyju verið fyrirlestrahald um málefni fatlaðs fólks. Hún hefur ferðast um land allt, og víðar, með fræðsluna Það eru forréttindi að lifa með fötlun.


Viðurkenningar:

Kærleikskúlan, hvatningarverðlaun Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. (2004)


Múrbrjóturinn, hvatningarverðlaun Landssamtakana Þroskahjálpar. (2006)


Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í flokki Til atlögu gegn fordómum. (2007)


Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands í flokki einstaklinga. (2007)


Rósin, hvatningarverðlaun í minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur alþingiskonu. (2008)

 

Lesið meira um stelpurnar á Forréttindi.is og blogginu þeirra.

 



 




Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica