Jim Stovall
Jim Stovall
Jim Stovall, fjárfestir og frumkvöðull ársins 1997, tók þátt í að stofna sjónvarpsstöðina NTN, sem gerir kvikmyndir og sjónvarp aðgengilegt fyrir 13 milljónir blindra eða sjónskertra. Hann varð síðar framkvæmdastjóri hennar. Sjónvarpsstöðin hefur hlotið Emmy og alþjóðleg kvikmynda- og myndbandaverðlaun og nýtur einnig mikilla vinsælda meðal þeirra sem hafa fulla sjón. Jim Stovall hlotnaðist sami heiður og veittur var Walt Disney, Orson Wells og fjórum forsetum Bandaríkjanna, þegar hann var valinn einn af Tíu framúrskarandi ungum Bandaríkjamönnum.
Jim Stovall er sjónskertur en náði því að verða Ólympíumethafi í lyftingum og haslaði sér síðan völl sem fjárfestir og frumkvöðull. Hann tók þátt í að stofna Narrative sjónvarpsstöðina (Narrative Television Network eða NTN), sem gerir kvikmyndir og sjónvarp aðgengilegt fyrir 13 milljónir Bandríkjamanna sem eru blindir eða sjónskertir, og varð síðar framkvæmdastjóri hennar. Sjónvarpsstöðin hefur hlotið Emmy verðlaun og alþjóðleg kvikmynda- og myndbandaverðlaun og nýtur einnig mikilla vinsælda meðal þeirra sem hafa fulla sjón. Stöðin nær til 35 milljón heimila í Bandaríkjunum og næst í 11 öðrum löndum. Þættir NTN birtast líka á Netinu í gegnum www.NarrativeTV.com og þjóna milljónum manna um heim allan. Jim Stovall stýrir einum af spjallþáttum NTN og meðal fjölmargra gesta hans má telja leikararana Katherine Hepburn, Jack Lemmon, Carol Channing, Steve Allen og Eddie Albert.
Jim Stovall hlotnaðist sami heiður og veittur var Walt Disney, Orson Wells og fjórum forsetum Bandaríkjanna, þegar hann var valinn einn af Tíu framúrskarandi ungum Bandaríkjamönnum af bandarísku Junior Chambers samtökunum. Hann hefur komið fram í Good Morning America og á CNN og fjallað hefur verið um hann í Reader‘s Digest, TV Guide og tímaritinu Time.
Jim Stovall er höfundur bókanna Þú þarft ekki að vera blindur til að sjá (You Don‘t Have To Be Blind To See), Leyndarmál þeirra sem ná ofurárangri (Success Secrets of Super Achivers), Eins og ég sé heiminn (The Way I See The World) og Allra besta gjöfin (The Ultimate Gift). Jafnréttisnefnd forseta Bandaríkjanna valdi Jim Stovall Frumkvöðul ársins árið 1997.

