forlag með sál
  • Fiann02

Fiann Paul

Fiann Paul

Erlendir

Ljósmyndarinn Fiann Paul er án efa þekktastur á Íslandi fyrir portrettmyndir sínar af börnum sem voru á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Í bók hans Goðsögninni sameinast ævintýralega fallegar ljósmyndir úr íslensku landslagi og þroskasaga sem vísar ekki bara inn á við heldur líka aftur í norræna goðafræði. Fiann hefur farið víða um heim og dvalið langdvölum í Himalajafjöllunum, Nepal og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt. Sérstöku ástfóstri hefur hann þó tekið við Ísland og býr ýmist hér eða í Los Angeles.

Í Goðsögninni, sem er fyrsta bók höfundar, sameinast ljósmyndir hans og saga þar sem hann fjallar um persónulegan þroska í bland við reynslu sína og hughrif frá því hann bjó og starfaði í Himalajafjöllum. Goðsögnin er í þýðingu Þorgríms Þráinssonar en kemur einnig út á ensku undir nafninu Legend. Myndirnar í bókinni minna á málverk, og sviðsetning og búningar kalla fram einstaka stemmningu sem lætur engan ósnortinn. Myndirnar voru teknar úti í náttúrunni og engin stúdíóvinna átti sér stað. Bakgrunnurinn er raunverulegur í öllum tilfellum.




Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica