Vilhelm Moberg
Vilhelm Moberg
Sænski rithöfundurinn og sagnfræðingurinn Vilhelm Moberg (1898-1973) skrifaði eitt frægasta ritverk sitt í fjórum hlutum á árunum 1949-1959. Ritröðin fjallar um veruleika sem blasti við mörgum Svíum á þessum árum; að flýja heimaland sitt vegna erfiðra aðstæðna heimafyrir. Sagan fjallar um fjölskyldu sem flyst búferlum frá Smálöndunum í Svíþjóð til Minnesota í Bandaríkjunum og skiptast á skin og skúrir í lífi þeirra.
Sagan (allar fjórar) var kosin árið 1997 í Svíþjóð besta sænska skáldsaga 20.aldar, og mikilvægasta bók Svíþjóðar árið 1998. Kvikmyndir hafa verið gerðar eftir bókunum, sem og sjónvarpsþættir sem margir Íslendingar kannast við. Þess má til gamans geta að meðlimir ABBA, þeir Björn og Benny, gerðu söngleik sem byggður var á sögunum, en hann kallaðist Kristina från Duvemåla (ens. Kristina). Salka endurútgefur fyrstu tvo hlutana, Vesturfararnir og Landnemana, bæði í kilju og harðspjalda.

