forlag með sál
  • susannahmarriott

Susannah Marriott

Susannah Marriott

Erlendir

Susannah Marriott er þriggja dætra móðir, rithöfundur og fyrirlesari sem hefur sérhæft sig í heilsu, uppeldi og grænum lífsstíl. Eftir hana hafa komið út 19 bækur, sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála, auk þess sem hún skrifar fyrir tímarit á borð við Marie Claire, Weekend Guardian, Top Santé og Junior.

Eins hefur hún komið að gerð útvarpsefnis fyrir BBC. Áður en hún fór að vinna sjálfstætt við skrif starfaði Susannah í tólf ár sem ritsjóri hjá Dorling Kindersley-útgáfunni í Bretlandi.

Susannah býr í Cornwall ar sem hún kennir ritlist við Háskólann í Falmouth. Í frítíma sínum ræktar hún lífrænt grænmeti og ávexti og gerir upp gamla sveitabæinn sem fjölskyldan býr á með umhverfisvænum byggingaraðferðum. Hún stundar jóga til að slaka á, syndir í Atlantshafinu, ferðast um í tjaldvagni og dansar við háværa jasstónlist.

Kaupa Uppeldi fyrir umhverfið

Kaupa 1001 leið til að slaka á 


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica