Hélène Berr
Hélène Berr
Gyðingastúlkan Hélène Berr fæddist í París 1921. Hún stundaði nám í rússnesku og enskum bókmenntum við Sorbonne-háskóla, auk þess sem hún spilaði á fiðlu. Þegar Nasistar réðust inn í Frakkland í seinni heimstyrjöld hóf Hélène að halda dagbók.
Hélène hefur verið kölluð „frönsk Anne Frank“ og dagbókin hennar vakið gífurlega athygli síðan hún fyrst kom út í janúar 2008. Í fyrstu færslum bókarinnar fer ekki mikið fyrir heimstyrjöldinni, heldur skrifar hún þá mest um umhverfi sitt, fyrstu ástina og vini sína í Sorbonne. En eftir því sem ógnir stríðsins færast nær finnur yfirstéttarstúlkan stöðugt meira fyrir hertökunni og því gyðingahatri sem henni fylgdi.
Síðasta færslan er frá 15. febrúar 1944 og hefur Hélène þá heyrt sögusagnir af áætlunum Nasista. Hún lést i Bergen Belsen útrýmingarbúðunum í apríl 1945, fáum vikum fyrir frelsun þeirra.
Lesið meira um Hélène Berr á Wikepediu

