forlag með sál
  • ElizabethGilbert

Elizabeth Gilbert

Elizabeth Gilbert

Erlendir

Elizabeth Gilbert fæddist í Conneticut 1969 og stundaði nám í New York. Hún hefur starfað sem blaðamaður og rithöfundur í þó nokkur ár, en sló í gegn fyrir alvöru með bókinni Borða, biðja, elska sem er sjálfsævisöguleg lýsing á leit hennar að hamingjunni.

Eftir erfiðan skilnað lagði Elizabeth í ferðalag til Ítalíu, Indland og Indónesíu og lýsir því á einlægan, fyndin og heiðarlegan hátt í bókinni. Borða, biðja, elska var valin ein af 100 eftirtektarverðustu bókum ársins 2006 í The New York Times og Elizabeth sjálf komst á lista yfir 100 áhrifaríkustu einstaklinga ársins 2008 í Time Magazine. Bókin hefur hvarvetna hlotið fádæma lof og m.a. hefur Oprah Winfrey hampað henni mjög.

Hollywood-kvikmyndin Coyote Ugly var unnin uppúr bók sem Elizabeth skrifaði um ár sín sem barþjónn. Og rétturinn að handriti eftir Borða, biðja, elska hefur verið keyptur af Paramount Pictures. Til stendur að Julia Roberts leiki aðalhlutverkið.

 

Lesið meira á heimasíu Elizabeth Gilbert.

Meira um bókina






Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica