forlag með sál
  • P.L._Travers

P. L. Travers

P. L. Travers

Erlendir

Pamela Lyndon Travers eða Helen Lyndon Goff, eins og hún hét upphaflega, fæddist árið 1899 í Ástralíu. Hún starfaði sem rithöfundur, leikkona og blaðamaður en sló í gegn með bókunum um Mary Poppins.

Travers gaf út ljóð strax á unglingsárum en árið 1934 kom fyrsta Mary Poppins bókin út.

Árið 1964 gaf Disney út mynd byggða á bókunum um Mary Poppins. Travers var aldrei ánægð með myndina og því varð ekkert framhald á myndum um barnfóstruna sívinsælu þrátt fyrir mikinn áhuga af hálfu Disney.

Travers giftist aldrei en ættleiddi einn dreng, hún lést í London árið 1996.






Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica