forlag með sál
  • Sue_Ellen_Cooper

Sue Ellen Cooper

Sue Ellen Cooper

Erlendir

Sue Ellen Cooper tók þá ákvörðun að lífinu skyldi ekki vera lokið eftir fimmtugt. Hún ákvað að fimmtugasti afmælisdagurinn væri sérstakt fagnaðarefni og keypti sér rauðan hatt í tilefni dagsins.

Sue Ellen Cooper stofnaði Rauðhettuklúbbinn árið 1998 og í dag eru Rauðhettur í Bandaríkjunum og Kanada að nálgast hálfa milljón og klúbburinn er byrjaður að skjóta rótum í Evrópu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi.

Hugmyndin að Rauðhettuklúbbnum kviknaði þegar Sue Ellen las ljóðið „Warning" eftir Jenny Joseph sem segir frá eldri konu sem klæðist fjólubláum fötum og ber rauðan hatt. Ljóðið hreif Sue Ellen svo að hún ákvað að gefa vinkonu sinni ljóðið ásamt rauðum hatti í afmælisgjöf. Vinkonan varð einnig svo hrifin að hún gaf fleirum sömu gjöf og svona hélt þetta áfram. Einn daginn ákveður þessi hópur að hittast í fullum skrúða, það er að segja í fjólubláum fötum sem passa alls ekki við rauða hattinn og það varð ekki aftur snúið. Rauðhettuklúbburinn varð til.

 

 




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica