Jack Kornfield
Jack Kornfield
Jack Kornfield er fæddur árið 1945. Hann hefur kennt hugleiðslu undanfarin þrjátíu ár og er mikilsvirtur leiðbeinandi í andlegri iðkun. Sigurður Skúlason íslenskaði valda kafla úr tveimur þekktustu bókum Kornfields.
Kornfield tvinnar forna austurlenska speki við nútíma hugsunarhátt Vesturlandabúa og hrífur lesendur sína með frábærri frásagnargáfu, einstökum og áhrifamiklum sögum úr samtímanum, með bjartsýni sinni og örvandi heilræðum.
Sigurður Skúlason hefur íslenskað valda kafla úr tveimur þekktustu bókum Kornfields og kom sú bók út undir nafninu Um hjartað liggur leið árið 2004.

