Fay Weldon
Fay Weldon
Skírnarnafn Fay Weldon er í raun Franklin Birkinshaw og fæddist hún í Worcestershire í Englandi í bókmenntasinnaða fjölskyldu. Fey eyddi fyrstu æviárunum á Nýja – Sjálandi þar sem faðir hennar starfaði sem læknir en þegar foreldrarnir skildu þá flutti hún með móður sinni aftur til Englands.
Móðir hennar, móðurbróðir og móðurafi voru öll rithöfundar en þó ætlaði Fay sér aldrei að verða rithöfundur, hana dreymdi um að verða fegurðardrottning, ballerína eða læknir.
Hún stundaði nám við St Andrews skólann í Skotlandi en flutti til London eftir að hún eignaðist son sinn, stuttu eftir það giftist hún fyrsta eiginmanni sínum sem var kennari, tuttugu árum eldri en hún og ekki faðir barnsins hennar. Þau skildu eftir tveggja ára hjónaband. Til að hafa í sig og á hóf hún störf á auglýsingastofu sem textasmiður og bjó til slagorðið: - með Vodka verður þú fyllri fyrr !
Fay giftist Roland Weldon antik-sölumanni 1963 og átti með honum þrjá syni til viðbótar. Hún byrjaði að skrifa fyrir útvarp og sjónvarp og nokkrum árum seinna gaf hún sína fyrstu bók Brandari breiðvöxnu konunnar og hún hefur gefið út rúmlegar 20 skáldsögur, smásagnasöfn, skrifað sjónvarpmyndir á 30 árum. Árið 1980 fékk hún verðlaun fyrir að samningu þáttanna Upstairs, Downstairs. Meðal þeirra bóka sem hún hefur gefið út eru: Ævi og ástir kvendjöfluls, Praxis, Sveitasæla og Bulgari sambandið sem kom út hjá Sölku árið 2004.
Weldon er nú búsett í London, ásamt þriðja eiginmanni sínum, og á fjóra uppkomna syni.

