forlag með sál
  • Don_Miguel_Ruiz

Don Miguel Ruiz

Don Miguel Ruiz

Erlendir

Don Miguel Ruiz er af ætt græðara og ólst upp í sveit í Mexíkó hjá móður sinni sem var græðari (curandera) og afa sem var seiðmaður (nagual). Miguel valdi að fara í læknisfræði og verða skurðlæknir.

Síðla kvölds um 1970 hrökk hann upp eftir að hafa sofnað undir stýri. Á sama andartaki skall bíllinn á steinvegg. Don Miguel man að hann var ekki í líkama sínum þegar hann dró vini sína tvo út úr bílnum á öruggan stað.

Honum varð brugðið við þessa lífsreynslu og í kjölfarið hóf hann ítarlega sjálfsskoðun. Hann ákvað að helga líf sitt fræði Tolteka og ná tökum á hinni fornu visku forfeðra sinna. Fyrst lærði hann allt sem hann gat af móður sinni en þreytti síðan lokapróf með mögnuðum seiðmanni úr mexíkósku eyðimörkinni. Afi hans sem var látinn á þessum tíma hélt áfram að kenna Miguel í draumum hans.

Samkvæmt hefð Tolteka vísar nagual fólki leiðina að persónulegu frelsi. Don Miguel Ruiz er nagual frá Eagle Knight (Arnar riddara) ættkvíslinni og hefur helgað líf sitt því að deila með öðrum sinni eigin þekkingu og lærdómi hinna fornu Tolteka.

Don Miguel Ruiz skrifaði bókina Lífsreglurnar fjórar sem Salka gaf út árið 2006.






Höfundar



Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica