Masaru Emoto
Masaru Emoto
Masaru Emoto fæddist í Yokohama í Japan 1943. Hann kom víða við og í Bandaríkjunum hugmyndum um smásjárklasa og tækni til að greina segulómun. Þannig hófst leitin að leyndardómum vatnsins.
Dr. Emoto hóf miklar rannsóknir á vatni um allan heim, ekki einungis sem vísindamaður, heldur sem frumlegur hugsuður. Um síðir skildist honum að vatnið birti okkur hið sanna eðli sitt í formi kristalla. Hann heldur áfram tilraunum sínum og hefur skrifað margar vinsælar bækur á japönsku ásamt hinni áhrifamiklu bók Skilaboð vatnsins sem var gefin út á tveimur tungumálum í einu. Hann er kvæntur Kazuko Emoto og tekur hún mikinn þátt í störfum hans og stjórnar Kyoikusha, útgáfudeild fyrirtækis hans. Þau eiga þrjú börn.
Bók hans, Vatnið og hin duldu skilaboð þess, kom út hjá Sölku árið 2007.

