Randy Pausch
Randy Pausch
Randy Pausch lést fyrir aldur fram, aðeins 46 ára gamall. Þegar hann þurfti að kveðja starfsvettvang sinn í Carnegie Mellon háskóla, þar sem hann var prófessor í tölvunarfræðum, vegna þess að hann átti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða, ákvað hann að halda fyrirlestur um lífsferil sinn.
Randy Pausch fæddist í Baltimore 1960. Hann starfaði sem prófessor í tölvunarfræðum og rannsakaði meðal annars hönnun forrita og samskipti tölva og manna. Árið 2006 greindist hann með alvarlegt krabbamein og eftir árángurslausar lækningatilraunir bjó hann sig undir síðustu mánuðina sem hann átti eftir ólifaða. 18. september 2007 flutti Randy „Síðasta fyrirlesturinn" í Carnigie Mellon háskólanum.
Jeffery Zaslow, blaðamaður hjá Wall Street Journal, var viðstaddur Síðasta fyrirlesturinn, hann skráði bókina sem vakti samstundis heimsathygli.
Það má einnig lesa meira á www.TheLastLecture.com og á heimasíðu Randy Pausch.

