Fredrik Härén
Fredrik Härén
Fredrik Härén skrifaði Hugmyndabókina sem kom út árið 2008 hjá Sölku. Hann hefur á skömmum tíma orðið einn eftirsóttasti fyrirlesari Svíþjóðar, um efni eins og sköpunarkraftinn, hugmyndaþróun og sjálfstæða atvinnustarfsemi.
Árið 2003 hélt hann meira en 180 fyrirlestra og námskeið um efni eins og sköpunarkraftinn, hugmyndaþróun og sjálfstæða atvinnustarfsemi.
Fredrik er stofnandi fjölda fyrirtækja, nú síðast convenient.info og interesting.org - fyrirtæki sem hefur þá viðskiptahugmynd að stunda viðskipti með hugmyndir. Hugmyndabókin er þriðja bók Häréns.

