Beint í leiðarkerfi vefsins.
Astrid Lindgren fæddist 14. nóvember 1907 í Svíþjóð. Hún skrifaði margar bækur fyrir börn og af þeim sem komið hafa út á íslensku má nefna Emil í Kattholti, Lína langsokkur, Börnin í Ólátagarði og Madditt.
Lesa meira
Barbara Berger er fædd í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Danmörku. Hún hefur skrifað margar sjálfsræktarbækur sem hafa verið hver annarri vinsælli víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum og í Evrópu.
Lesa meira
Bruce McMillan hefur skrifað og myndskreytt fleiri barnabækur um íslensk efni en nokkur annar bandarískur höfundur og hann hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir mörg verka sinna.
Lesa meira
Byron Kathleen Reid er viðskiptamanneskja og móðir sem býr í suður Kaliforníu í Bandaríkjunum. Á fertugsaldri varð hún alvarlega þunglynd. Í næstum tvö ár gat hún varla farið fram úr rúminu og var heltekin af hugsunum um sjálfsmorð.
Lesa meira
Carolyn Parkhurst hefur gefið út tvær skáldsögur og hefur önnur þeirra verið þýdd á íslensku. Það er bókin Leyndarmál Lorelei sem Salka gaf út árið 2005. Hún býr í Washington ásamt manni sínum og tveimur börnum.
Lesa meira
Clare er bandarískur rithöfundur sem hefur ritstýrt bókum á borð við Endalausa hollustu. Hún tók saman girnilegar uppskriftir að grænmetis- og ávaxtassöfum í bókina.
Don Miguel Ruiz er af ætt græðara og ólst upp í sveit í Mexíkó hjá móður sinni sem var græðari (curandera) og afa sem var seiðmaður (nagual). Miguel valdi að fara í læknisfræði og verða skurðlæknir.
Lesa meira
Eckhart Tolle býr í Vancouver í Bresku Kólumbíu. Bækur hans og fyrirlestrar byggja á því besta úr tímalausum kenningum leiðtoga og heimspekinga allt frá fornöld að leiðum til að öðlast vellíðan.
Lesa meira
Elizabeth Gilbert fæddist í Conneticut 1969 og stundaði nám í New York. Hún hefur starfað sem blaðamaður og rithöfundur í þó nokkur ár, en sló í gegn fyrir alvöru með bókinni Borða, biðja, elska sem er sjálfsævisöguleg lýsing á leit hennar að hamingjunni.
Lesa meira
Skírnarnafn Fay Weldon er í raun Franklin Birkinshaw og fæddist hún í Worcestershire í Englandi í bókmenntasinnaða fjölskyldu. Fey eyddi fyrstu æviárunum á Nýja – Sjálandi þar sem faðir hennar starfaði sem læknir en þegar foreldrarnir skildu þá flutti hún með móður sinni aftur til Englands.
Lesa meira
Ljósmyndarinn Fiann Paul er án efa þekktastur á Íslandi fyrir portrettmyndir sínar af börnum sem voru á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Í bók hans Goðsögninni sameinast ævintýralega fallegar ljósmyndir úr íslensku landslagi og þroskasaga sem vísar ekki bara inn á við heldur líka aftur í norræna goðafræði. Fiann hefur farið víða um heim og dvalið langdvölum í Himalajafjöllunum, Nepal og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt. Sérstöku ástfóstri hefur hann þó tekið við Ísland og býr ýmist hér eða í Los Angeles.
Lesa meira
Fredrik Härén skrifaði Hugmyndabókina sem kom út árið 2008 hjá Sölku. Hann hefur á skömmum tíma orðið einn eftirsóttasti fyrirlesari Svíþjóðar, um efni eins og sköpunarkraftinn, hugmyndaþróun og sjálfstæða atvinnustarfsemi.
Lesa meira
Gyðingastúlkan Hélène Berr fæddist í París 1921. Hún stundaði nám í rússnesku og enskum bókmenntum við Sorbonne-háskóla, auk þess sem hún spilaði á fiðlu. Þegar Nasistar réðust inn í Frakkland í seinni heimstyrjöld hóf Hélène að halda dagbók.
Lesa meira
Jack Kornfield er fæddur árið 1945. Hann hefur kennt hugleiðslu undanfarin þrjátíu ár og er mikilsvirtur leiðbeinandi í andlegri iðkun. Sigurður Skúlason íslenskaði valda kafla úr tveimur þekktustu bókum Kornfields.
Lesa meira
Lawrence Schimel er fæddur árið 1971 í New York. Hann hefur skrifað yfir 45 bækur fyrir bæði börn og fullorðna. Barnabókin Sylvía og drekinn kom út hjá Sölku árið 2007.
Lesa meira
Marita van der Vyver er frá Suður-Afríku. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna en sögur hennar einkennast af frásagnargleði og takmarkalausu hugarflugi. Salka gaf út bókina Engillinn hennar Grétu árið 2003.
Lesa meira
Masaru Emoto fæddist í Yokohama í Japan 1943. Hann kom víða við og í Bandaríkjunum hugmyndum um smásjárklasa og tækni til að greina segulómun. Þannig hófst leitin að leyndardómum vatnsins.
Lesa meira
Maxine Gaudio heilari og orkumeistari er einn okkar besti Íslandsvinur og býr til skiptis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún hefur stúderað íslenska þjóðarsál og leiðbeint mörgum hérlendis í átt til betra lífs og lumar jafnvel á einföldum en áhrifaríkum ráðum fyrir þjóð sem stendur á tímamótum.
Lesa meira
Michèle Roberts er fædd árið 1949, tuttugu mínútum á eftir tvíburasystur sinni Marguerite. Móðir hennar er frönsk en faðir hennar enskur og Michèle ólst upp í Englandi. Roberts var m.a. tilnefnd til Bookerverðlaunanna fyrir Dætur hússins.
Lesa meira
Naomi Moryama og William Doyle skrifuðu bókina Japanskar konur - hraustar og grannar. Þau upplifðu það af eigin raun að dvelja til Tókýó í mánuð og kílóin hrundu af þeim. Það eina sem þau gerðu var að borða heimilismatinn hjá foreldrum Moryama í Japan.
Lesa meira
Nojud Ali frá Jemen vakti heimsathygli þegar hún, aðeins tíu ára, krafðist skilnaðar frá manni sem hún hafði verið gift. Henni var veittur skilnaður og hún varð að hetju sem er fyrirmynd annara stúlkna í svipuðum aðstæðum.
Saga Nojoud vekur athygli á stöðu kvenna og stúlkna á þessum slóðum, en mikill meirihluti þeirra er giftur fyrir átján ára aldur.
Lesa meira
Pamela Lyndon Travers eða Helen Lyndon Goff, eins og hún hét upphaflega, fæddist árið 1899 í Ástralíu. Hún starfaði sem rithöfundur, leikkona og blaðamaður en sló í gegn með bókunum um Mary Poppins.
Lesa meira
Randy Pausch lést fyrir aldur fram, aðeins 46 ára gamall. Þegar hann þurfti að kveðja starfsvettvang sinn í Carnegie Mellon háskóla, þar sem hann var prófessor í tölvunarfræðum, vegna þess að hann átti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða, ákvað hann að halda fyrirlestur um lífsferil sinn.
Lesa meira
Rhonda Byrne er fædd árið 1955 í Ástralíu. Hún skrifaði metsölubókina The Secret eða Leyndarmálið sem Salka gaf út árið 2007. Einnig hefur verið gefin út DVD diskur um Leyndarmálið sem er einnig fáanlegur hjá Sölku.
Lesa meira
Rita Emmett hefur skrifað þrjár bækur og hafa tvær þeirra komið út hjá Sölku. Hún er bæði fyrirlesari og ráðgjafi og hefur kennt mörgum listina við að losa sig við drasl og drífa í hlutunum.
Lesa meira
Sandra Benítez er fædd og uppalin í El Salvador en býr nú í Minnesota. Hún hefur skrifað margar bækur þar sem sögusviðið er El Salvador en ein þeirra, Hjómið eitt, var gefin út á íslensku árið 2005.
Lesa meira
Sophie Kinsella hefur skrifað fimm bækur um kaupalkann Rebeccu Bloomwood. Fyrsta bókin Draumaveröld kaupalkans kom út hjá Sölku árið 2005 og var loksins endurprentuð 2008.
Lesa meira
Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni Fiskur! þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Fiskur! er heiti á hugmyndakerfi sem hefur bætt starfsárangur og vinnuánægju fólks víða um heim.
Sue Ellen Cooper tók þá ákvörðun að lífinu skyldi ekki vera lokið eftir fimmtugt. Hún ákvað að fimmtugasti afmælisdagurinn væri sérstakt fagnaðarefni og keypti sér rauðan hatt í tilefni dagsins.
Lesa meira
Susan Nolen-Hoeksema er prófessor í sálarfræði. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar frá alþjóðlegum sjóðum og stofnunum fyrir rannsóknir á ofhugsun kvenna síðustu tuttugu árin.
Lesa meira
Susannah Marriott er þriggja dætra móðir, rithöfundur og fyrirlesari sem hefur sérhæft sig í heilsu, uppeldi og grænum lífsstíl. Eftir hana hafa komið út 19 bækur, sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála, auk þess sem hún skrifar fyrir tímarit á borð við Marie Claire, Weekend Guardian, Top Santé og Junior.
Lesa meira
Suzanne Martin er doktor í sjúkraþjálfun og hefur yfir 25 ára reynslu á sviði heilsu og hreyfiþjálfunar. Suzanne er yfirsjúkraþjálfari hjá Smuin Balletinum í San Francisco og rekur einnig eigin stofu. Martin skrifaði bókina Teygjur.
Lesa meira
Sylvia birti sitt fyrsta ljóð átta ára gömul. Vel gefin, næm og reyndi að ná fullkomnun í flestu sem hún tók sér fyrir hendur; á yfirborðinu hin fullkomna dóttir, vinsæl í skóla, fékk toppeinkunnir. Þegar hún hóf nám í Smith háskólanum með skólastyrk hafði hún birt þónokkur ljóð í blöðum og á meðan dvöl hennar stóð samdi hún yfir 400 ljóð.
Lesa meira
Thomas W. Phelan er þekktur og vinsæll bandarískur sálfræðingur sem hefur sérþekkingu á agamálum og athyglisbresti hjá börnum. Hann setti fram 1-2-3 aðferðina sem nú er orðin þekkt um allan heim.
Lesa meira
Tricia Kreitman er ráðgjafi og dálkahöfundur hjá tveimur unglingablöðum í Bretlandi Hún er menntuð í sálarfræði og hefur sérhæft sig í kynlífsráðgjöf.
Tricia skrifaði bókina Stelpa, stattu á þínu! sem kom út árið 2001 hjá Sölku.
Lesa meira
Victoria Moran er þekktur fyrirlesari og höfundur fjölmargra bóka um listina að lifa. Með jákvæðum huga hefur henni tekist að þróa öflugar aðferðir til að gæða hversdagslífið töfrum og efla innri frið og hugarró.
Lesa meira
Sænski rithöfundurinn og sagnfræðingurinn Vilhelm Moberg (1898-1973) skrifaði eitt frægasta ritverk sitt í fjórum hlutum á árunum 1949-1959. Ritröðin fjallar um veruleika sem blasti við mörgum Svíum á þessum árum; að flýja heimaland sitt vegna erfiðra aðstæðna heimafyrir. Sagan fjallar um fjölskyldu sem flyst búferlum frá Smálöndunum í Svíþjóð til Minnesota í Bandaríkjunum og skiptast á skin og skúrir í lífi þeirra.
Lesa meira