forlag með sál
Umsagnir
Galdur_visdomsbokarinnar

Galdur Vísdómsbókarinnar

5.6.2008

Hún hefur allt sem þarf; Spennu, drama, ástir, svik og náttúrulega bardaga af bestu gerð. Oft á tíðum var ég að missa mig af spenningi yfir því sem gerðist næst. Bókin fjallar um Hrólf sem býr í Humlabyggð þar sem hann lifir frekar litlausu lífi en það tekur straumhvörfum þegar hann grefur upp gullnælu fyrir tilviljun og hefst þar með ótrúleg atburðarás. Hann grefur líka upp líkamlegar leifar af Elvínu fyrrverandi drottningu Humlabyggðar þar sem hann er í leit að meira gulli og með því losar hann úr læðingi myrk öfl.

Hrólfur verður að bjarga málunum og vinna á " álögum" Elvínu. Hann tekur sér á hendur ótrúlega ferð þar sem ævintýir og hættur bíða hans. Heilindi Hrólfs virðast koma honum áfram á meðan heima fyrir virðast lygar og svik ráða ríkjum og magnast enn þegar óvæntur gestur birtist.

Þessi bók gjörsamlega heillaði mig þannig að ég gat varla hætt að lesa.

Það eru fáar íslenskar bækur sem eru jafn vel skrifaðar svo að þessi á skilið að ganga vel.

Þessi bók er fyrir alla krakka 8 - 99 ára!

Þrúður Guðmundsdóttir






Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica