Míní-Bínur í skó
Þeir tínast úr fjöllunum þessa dagana - einn og einn. Jólasveinatíminn er skemmtilegur og spennandi og þessa dagana vakna kát börn um allt land og þurfa ekkert að óttast kartöflur. Þau finna hina sívinsælu Bínu, sem þau þekkja flest úr leikskólanum og skólanum. Salka varð við ósk sveinka og sendi frá sér Bínu-bækurnar í handhægu jóla-broti, sem smellpassar í skó.
SALKA samdi við sveina. Hin sívinsæla Bína, sem fyrst var bálreið, byrjaði svo á leikskóla og er nú farin að læra orð, hljóð og stafi er komin út í handhægu litlu broti, sem passar vel í vasa, tösku, SKÓ og litla lófa.
Allar þrjár bækurnar: Bína bálreiða, Bína fer í leikskóla og Bína lærir orð, hljóð og stafi skrifaði talmeinafræðingurinn Ásthildur Bj. Snorradóttir. Hún hefur langa reynslu af því að styrkja boðskipti og efla málþroska ungra barna. Bínubækurnar byggja á þeirri þekkingu. Þær hafa verið einstaklega vinsælar í leikskólum og yngstu bekkjum grunnskóla, þar sem unnið er markvisst með málvitund og samskiptafærni.
Bækurnar myndskreytti Bjarni Þór Bjarnason. Litlu Bínubækurnar eru í kiljubroti og prentaðar í Odda.
