forlag með sál
Fréttir

Lífið er yndislegt!


Sumarið er dásamlegt í Sölku. Ekki einungis er veðrið dásamlegt heldur eru bækurnar okkar að fá frábærar viðtökur. Salka á t.a.m. þriðjung bókanna á metsölulista (mest seldar bækur síðustu tveggja vikna) Félags íslenskra bókaútgefenda. Titlar seljast upp og við höfum vart undan að taka á móti þeim úr endurprentunum.





Bækurnar Grillaðu maður! og Eldaðu maður!, sem seldust upp á dögunum, komu úr endurprentun nýverið og eru komnar á flug í búðum.

 Eld_og_grill




Bókin okkar Rikka og töfrahringurinn sem Sameinuðu þjóðirnar völdu til að vekja athygli á menntunar- og umhverfismálum, seldist upp í sumar, bæði á íslensku og ensku (Rikka and her magic ring) og er væntanleg úr endurprentun á næstu dögum. 


RikkaISLkapanet



Útivistarbókin okkar nýstárlega; Fjallabók barnanna og ljósmyndabókin okkar, Eldur uppi/Iceland on Fire eru að klárast á lager og koma úr endurprentun á næstu vikum. 


Fjallabok_barnannaeldur_uppi





Bókin 25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu fékk framúrskarandi móttökur og er hún, ásamt skáldsögunni Hlustarinn nú einungis til í takmörkuðu upplagi. 


Hlustarinn_f_netGongul_isl_net




Bókin Borða, biðja, elska hóf sig aftur til flugs eftir að samnefnd bíómynd var komin í kynningu. Hún var að klárast á lager og var sett í endurprentun og er væntanleg þaðan á næstu vikum.

Borda_bidja_elska



Síðast en ekki síst er bókin okkar Það sem mér ber – mest selda skáldsaga landsins – að klárast á lager en er væntanleg úr endurprentun á næstu dögum.

 

Thad_sem_mer_ber3d



Hver segir svo að það séu ekki jól alla daga?





Sjá metsölulista Félags íslenskra bókaútgefenda




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica