Fréttir
Iceland on Fire!!!
Bókin Eldur uppi / Iceland on Fire er komin út!
Við hjá Bókaútgáfunni Sölku höfum beðið óþreyjufull við prentvélina eftir að fá bók okkar, og ljósmyndarans Vilhelms Gunnarssonar, Eldur uppi / Iceland on Fire í hendur.
Við erum himinlifandi með útkomuna og vonum að aðrir séu það líka.
Eldur uppi / Iceland on Fire er einstök ljósmyndabók sem fjallar í myndum um eldgosið í Eyjafjallajökli. Sjónarspilið var mikilfenglegt eins og íbúar heims fengu að kynnast og kenna á.
Bókin sýnir þó meira en hið magnaða sjónarspil eldsins því hún sýnir jafnt mannlegu hliðarnar - það sem á gekk í nágrenni gossins, en sveitirnar í kring fengu heldur betur að finna fyrir ógnarkrafti náttúruaflanna og hárbeittum eftirleiknum.

