Kjörganga Sölku
Þann 27. maí stóð Salka fyrir Kjörgöngu frá Perlunni í Nauthólsvík.
Í gönguna mættu frambjóðendur og kjósendur í Reykjavík og fóru fram fjörlegar umræður í glampandi sól og góðu veðri. Gangan hófst í Sögusafninu í Perlunni en síðan lá leiðin niður Öskjuhlíðina og endaði á Nauthól þar sem frambjóðendur skiptust á skoðunum og sögðu skemmtisögur.
Tilefni Kjörgöngunnar var útkoma metsölubókarinnar 25 Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, eftir Reyni Ingibjartsson, en ganga um Öskjuhlíð er einmitt ein þeirra. Í bókinni er að finna greinargóðar lýsingar, myndir og kort af gönguleiðunum þar sem hægt er að njóta náttúru og heilnæmrar útiveru á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að nota Strætó til að komast í flestar leiðanna.
