Til hamingju, Kristín!
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent í mars við skemmtilega athöfn á Hótel Sögu.
Meðal þeirra fjögurra bóka sem fengu viðurkenningu var hin gullfallega og einstaka klippimyndasaga um Arngrím apaskott eftir Kristínu Arngrímsdóttur, en hún sá bæði um texta og myndir.
Arngrímur litli er listhneigt apaskott. Þegar hann gengur fram á Sólrúnu sem er að spila á fiðlu fyrir ömmu sína, heillast hann af seiðandi tónunum og nappar fiðlunni. Eftir snarpan eltingarleik um litríkt klippimyndalandslag getur Arngrímur ekki beðið lengur, hann verður að prófa fiðluna núna! Hann strýkur strengina af einskærri tónelsku, svo mikilli, að Sólrún og amma hætta við að ná af honum fiðlunni, og setjast heillaðar hjá honum til að hlusta.
Skoða bókina Arngrímur Apaskott og fiðlan

