forlag með sál
Fréttir
Hlustarinn_f_net

Þriðja bók ársins, Hlustarinn, komin í búðir!


Árið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Fólkið átti að starfa hér í eitt ár en örlögin höguðu því þannig að margar kvennanna giftust annaðhvort bóndanum eða bóndasyninum og settust þær að víða um land.

Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu?

Á meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, trúað fyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða frá. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart.


Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur.






Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica