Salka tvöfaldur sigurvegari í París!
Nýverið veitti Gourmand akademían verðlaun fyrir bestu uppskriftabækururnar sem valdar voru úr gríðarlegum fjölda og urðu tvær bækur frá SÖLKU fyrir valinu. Önnur verðlaun í flokki fiskiuppskriftabóka fékk Spriklandi lax í boði veiðikokka og í flokki franskra matreiðslubóka fékk bókin Sælkeragöngur um París – og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu þriðju verðlaun.
Heimsfrægir matreiðslumenn tóku þátt í keppninni, og meðal verðlaunahafa voru Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros.
Árið 2007 fékk bókin Delicious Iceland, sem SALKA gaf út sérstök heiðursverðlaun eftir að hafa fengið tilnefningu í þremur flokkum; bestu ljósmyndir í matreiðslubók, bestu uppskriftir og besta sögulega uppskriftabókin.

Spriklandi lax í boði veiðikokka
Þar segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Lárus Karl Ingason á heiðurinn af ljósmyndunum en Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáum um textagerð. Bókin er 126 bls., skreytt glæsilegum litmyndum.
Sælkeragöngur um París - og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu
Bókin er eftir mæðgurnar Sigríði Gunnarsdóttur og Silju Sallé. Sigríður hefur búið öll sín fullorðinsár í Frakklandi, í bókinni leiðir hún lesendur um hverfi Parísarborgar sem eru tuttugu talsins. Hún lýsir hverju hverfi fyrir sig, íbúum þess, lífi og sögu. Í lok hvers kafla eru síðan dásemdaruppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti að hætti hverfisins og Parísarbúa. Bókin er skreytt glæsilegum myndum Silju af réttunum og mannlífi borgarinnar.
