Fréttir
Tveggja ára meðgöngu er lokið og fílsunginn fæddur!
1.2.2010
Loksins er nýr vefur Sölku kominn í loftið; ítarlegri en þó aðgengilegri en fyrirrennarar hans.
Við höfum bætt við upplýsingum, tenglum, myndum og tengst enn öruggara sölukerfi. Það er von okkar að hann bæti á allan hátt verslun sem og leit að titlum og upplýsingum. Vefurinn er þó og verður í sífelldri vinnslu, en við leggjum okkur fram við að hafa allar upplýsingar réttar og nýjar.
Ef einhverjar athugasemdir eru við efni síðunnar þætti okkar vænt um að fá um það línu á gudrun@salkaforlag.is
