forlag með sál
Fréttir
reykjakot7

Prjónamaskínur í Mosó

Eins og margir eflaust tóku eftir stóðu bókaforlagið SALKA og verslunir Eymundsson fyrir vettlingasöfnun fyrir Mæðrastyrksnefndir í haust. Hugmyndin með verkefninu var fyrst og fremst að benda á stöðuga aukningu fólks sem leitar aðstoðar hjálparstofnanna hérlendis og benda á það að öll getum við lagt brýnum málstað lið með einhverjum hætti.


Viðbrögðin létu ekki á sér standa og vettlingarnir streymdu inn. - Og enn eru þeir að berast. Nýlega komu í Sölku leikskólakennarar úr leikskólanum Reykjakoti í Mosfellsbæ með alls 55 gullfalleg vettlingapör.

Starfsmenn Reykjakots höfðu tekið höndum saman, hist utan vinnutíma og prjónað fyrir söfnunina. Alls tóku 20 starfsmenn leikskólans þátt í prjónaátakinu og við það bættust svo nokkrir foreldrar. Tvær af starfsmönnunum kunnu ekki að prjóna í upphafi, önnur þeirra var með í för í Sölku og sagði að æðið hefði gripið sig og nú prjónar hún öll kvöld.

Leikskólinn Reykjakot starfar í anda Hjallastefnunnar, starfsmannahópurinn þar er samrýmdur og vinnur náið að ýmissi handavinnu í skólastarfi og frístundum. Hópurinn greip fagnandi tækifærið að láta gott af sér leiða og hjálpa Mæðrastyrksnefnd í að hlýja litlum barnahöndum í vetur.


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica