forlag með sál
Fréttir
Nojoud

Úr þöglu fórnarlambi í fyrirmynd

Jemenska stúlkan Nujood Ali var aðeins 10 ára þegar hún sótti um og fékk skilnað frá eiginmanni sínum sem var 20 árum eldri en hún. Nú hálfu öðru ári síðar er Ali að reyna að aðstoða Sally Sabahi, sem er aðeins 12 ára, að skilja við eiginmann sinn sem er 21 árs. Frá þessu er greint í frétt á mbl 14. des. En saga Nojoud kom út hjá Sölku í haust.

Árið 2008 gekk 10 ára stúlka inn í dómshúsið í Jemen og bað um skilnað frá eiginmanni sínum sem hafði beitt hana hroðalegu ofbeldi. Átakanleg en falleg saga um litla stelpu sem brýst undan ómanneskjulegum hefðum. Bókin er á metsölulistum um allan heim og Nojoud orðin fyrirmynd stúlkna sem lenda í líkum aðstæðum.

Saga Nojoud, tíu ára sveitastelpu frá Jemen, vakti heimsathygli þegar hún komst í fréttirnar vorið 2008. Litla stúlkan gekk inn í dómhúsið í Jemen og bað um skilnað frá eiginmanni sínum, sem hafði beitt hana hrottalegu ofbeldi. Hún neitaði að fara fyrr en dómari væri búinn að hlusta á hana.

Hún fékk skilnaðinn – sú fyrsta á þessum slóðum, þar sem meira en helmingur stúlkna giftist á barnsaldri. Hugrekki Nojoud hefur orðið fyrirmynd stúlkna sem lenda í svipuðum aðstæðum.

Sagan er skráð af Delphine Minoui, mikilsvirtri franskri fréttakonu sem hefur sérhæft sig í malefnum Mið-Austurlanda. Laufey S. Sigurðardóttir þýddi. Bókin er 191 bls., í hörðu broti og prentuð í Odda.


Sjá bókina






Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica